
时间:2005-08-08
在手机上保存,获得更好体验
Hugann seiða svalli frá
Sundin heiði og skörðin
Vona-leið er valin þá
Vestur Breiðafjörðinn.
Allt er borið burtu gróm
Bæði af Skor og fjöllum
því að vorið blóm við blóm
Breiddi í sporum öllum.
Dægur-halli daggperlum
Dreifir vallargróðann
Bjargastalla beltast um
Blessuð fjallamóðan.
Þrjóti grið á þessum stað
þá er lið að skeiðum
því að hlið er opið að
úthafsmiðum breiðum.